Gian Piero Gasperini, stjóri Atalanta, hikaði ekki við að hrauna yfir sinn eigin leikmann, Ademola Lookman, eftir tap liðsins í Meistaradeildinni í gær.
Liðið mætti Club Brugge í seinni leik liðanna í umspili um sæti í 16-liða úrslitum. Belgíska liðið vann leikinn óvænt 1-3 og einvígið samanlagt 5-2.
Lookman skoraði mark Atalanta í gær en klikkaði einnig á víti. Gasperini er brjálaður yfir að hann hafi yfirhöfuð tekið spyrnuna.
„Lookman átti ekki að taka þetta víti. Hann er ein versta vítaskytta sem ég hef séð,“ sagði hann eftir leik.
„Hann skorar sjaldan úr vítum á æfingum. Retegui og De Ketelaere voru þarna en Lookman tók boltann þar sem hann var með sjálfstraust eftir markið. Ég kunni ekki að meta þetta,“ sagði Gasperini enn fremur.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem vítaklúður Lookman er í fréttum en hann klúðraði á eftirminnilegan hátt á mikilvægu augnabliki í leik Fulham gegn West Ham á sínum tíma.