Afrekssjóður ÍSÍ hefur tekið ákvörðun um úthlutanir úr sjóðnum til afreksstarfs sérsambanda. KSÍ hlýtur 24,6 milljónir króna.
Af vef ÍSÍ:
ÍSÍ úthlutar tæpum 300 m.kr. í afreksstarf sérsambanda
Á Fjárlögum ríkisins vegna ársins 2025 voru 637 m.kr. veittar til innleiðingar á nýju fyrirkomulagi afreksstarfs og byggir sú fjárveiting á tillögum sem starfshópur mennta- og barnamálaráðuneytis sem leiddur var af Vésteini Hafsteinssyni afreksstjóra ÍSÍ skilaði af sér á vormánuðum 2024, en lesa má um þær tillögur í skýrslu starfshópsins.
Unnið er að innleiðingu á nýju fyrirkomulagi en uppfæra þarf regluverk íþróttahreyfingarinnar og ýmsa skipulagslega þætti samhliða því að setja í gang aðgerðir eins og fjallað er um í tillögum starfshópsins. Sumt af því mun þó þurfa að bíða eftir ákvörðun Íþróttaþings ÍSÍ sem fram fer í maí á þessu ári.
Framkvæmdastjórn ÍSÍ hefur samþykkt að ráðstafa nú þegar tæplega 300 m.kr. af þessum fjármunum í afreksstarf sérsambanda og er þar verið að styðja við almennt landsliðs- og afreksstarf þeirra sem og stórmótaþátttöku sérsambanda á árinu 2025. Bætast þessar upphæðir við þann styrk sem úthlutað var úr Afrekssjóði ÍSÍ í lok síðasta árs vegna verkefna ársins 2025.
Framkvæmdastjórn ÍSÍ fól Afrekssjóði ÍSÍ umsýslu með þessari styrkveitingu og byggir þessi úthlutun á tillögum Afrekssjóðs ÍSÍ og tillögum vinnuhóps sem skipaður var starfsfólki ÍSÍ ásamt hluta þeirra aðila sem skipuðu fyrrnefndan starfshóp.Áfram verður unnið að því að móta aðrar aðgerðir sem snúa að þessari innleiðingu og má þar nefna stuðning til afreksíþróttafólks og þjálfara vegna framfærslukostnaðar, stuðning vegna kostnaðarþátttöku landsliðsfólks í yngri landsliðum og að koma á fót Afreksmiðstöð Íslands sem mun hafa það hlutverk að styðja við faglegt starf sérsambanda ÍSÍ og þjónusta þau og íþróttafólk.