Manchester City íhugar það alvarlega að henda 30 milljörðum á borðið hjá Bayer Leverkusen til að reyna að losa tvo af þeirra bestu mönnum.
Þannig greina enskir miðlar frá því í dag að City horfi til þess að fá Florian Wirtz og Jeremie Frimpong í sumar.
Kyle Walker hefur yfirgefið City og vantar Pep Guardiola því að fá inn hægri bakvörð, Frimpong var ungur að árum í herbúðum City.
Svo gæti Kevin de Bruyne farið frá City í sumar þegar samningur hans er á enda og Wirtz gæti því komið inn sem arftaki hans.
Báðir hafa þeir verið frábærir í liði Leverkusen síðustu ár en talið er að það þurfi um 166 milljónir punda til að fá þá báða.
Wirtz er 21 árs gamall og hefur skorað 15 mörk og lagt upp tólf í 34 leikjum á þessu tímabili.