Trent Alexander-Arnold, leikmaður Liverpool, er kominn með nýja kærustu en hún ber nafnið Estelle Behnke.
Trent og Estelle sáust saman í fyrsta sinn opinberlega í nóvember en skelltu sér á rómantískt stefnumót nú í vikunni.
Estelle þykir vera gríðarlega falleg en hún er 24 ára gömul og er tveimur árum yngri en enski landsliðsmaðurinn.
Trent gæti verið á förum frá Englandi næsta sumar en samningur hans við Liverpool er við það að renna út. Talið er að leikmaðurinn sé að semja við Real Madrid á Spáni.
Samkvæmt enskum miðlum var Trent þarna að staðfesta það að hann væri kominn á fast í fyrsta sinn í einhvern tíma.
Sá enski var áður með konu að nafni Iris sem er dóttir leikarans Jude Law.