Eins og margir vita eru allar líkur á að stórstjarnan Neymar sé að semja við uppeldisfélag sitt Santos í Brasilíu.
Neymar hefur undanfarin ár spilað með Al-Hilal í Sádi Arabíu en spilaði örfáa leiki þar vegna meiðsla.
Brasilíumaðurinn er samningslaus eftir að samningi hans í Sádi var rift og er hann líklega á leið til heimalandsins.
Samkvæmt miðlinum UOL vill Neymar fá alvöru liðsstyrk eftir komuna en hann er með þrjá leikmenn sem hann hefur áhuga á að fá til Santos.
Það eru tveir varnarmenn eða þeir Sergio Ramos og Thiago Silva og einnig miðjumaðurinn öflugi Paul Pogba.
Santos þyrfti að borga þessum mönnum himinháa upphæð ef þeir ákveða að semja við félagið en minnstar líkur eru á að Silva taki slaginn þar sem hann spilar með uppeldisfélagi sínu, Fluminese, í dag.