Hector Moreno, fyrrum landsliðsmaður Mexíkó, viðurkennir það að hann hafi ekki kunnið að verjast mest allan ferilinn.
Moreno er varnarmaður en hann samdi við Roma árið 2017 eftir tíma hjá AZ, Espanyol og PSV.
Þar lærði Moreno mikið sem knattspyrnumaður en hann lék þó aðeins fimm deildarleiki á Ítalíu.
,,Þegar ég gekk í raðir Roma þá áttaði ég mig á því að ég kunni ekki að verjast,“ sagði Moreno sem spilar í dag með Monterrey í Mexíkó og er 37 ára gamall.
,,Ég samdi við Pumas þegar ég var 15 ára og kunni ekki að verjast. Þegar ég fór til Roma þá kom í ljós að ég hafði ennþá ekki lært það.“
,,Ég hef aldrei lært eins mikið og á þessum sjö mánuðum hjá Roma. Þeir útskýrðu hluti fyrir mér og ég hugsaði: ‘Hvernig gat ég ekki vitað þetta?’