Þýski miðillinn Bild birti ansi áhugaverða grein nýlega þar sem fjallað er um fyrrum markmann Paris Saint-Germain, Kevin Trapp.
Trapp er í dag markvörður Eintracht Frankfurt en hann er talinn vera afar myndarlegur og er í sambandi með fyrirsætunni Izabel Goulart.
Samkvæmt Bild hefur Frankfurt áhyggjur af þessu sambandi og er ástæðan heldur sérstök en Isabel spilar stórt hlutverk.
Greint er frá því að Frankfurt hafi áhyggjur af kynlífi parsins og að Trapp sé að einbeita sér of mikið að öðrum hlutum í vinnunni.
Trapp ku hafa staðið sig mun verr á æfingum Frankfurt síðustu mánuði en Bild segir að kærasta hans heimti kynlíf allt að þrisvar á dag sem gæti haft áhrif á hans frammistöðu.
Kynlífið ku ekki vera hefðbundið en Trapp er sjálfur 34 ára gamall en Isabel er sex árum eldri og kynntust þau er hann lék með PSG í Frakklandi.
Hvort um slúðurfréttir sé að ræða er ekki ljóst en Trapp er enn aðalmarkvörður Frankfurt og hefur verið undanfarin fimm eða sex ár.