Búið er að draga í umspil um sæti í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar. Í pottinum voru liðin sem enduðu í 9.-24. sæti deildarkeppninnar. Fara sigurvegararnir svo til móts við efstu 8 liðin í deildarkeppninni í 16-liða úrslitum.
Ensku liðin Tottenham og Manchester United sluppu við þetta stig keppninnar og beint inn í 16-liða úrslit. En í umspilinu eru lið eins og Roma, Porto og Real Sociedad.
Það verður einmitt Íslendingaslagur þegar Midtjylland og Real Sociedad mætast. Orri Steinn Óskarsson spilar auðvitað með spænska liðinu og þá er Elías Rafn Ólafsson á mála hjá dönsku meisturunum, en hann hefur þó verið meiddur undanfarið.
Umspilið
Ferencvaros – Viktoria Plzen
Union SG – Ajax
Porto – Roma
PAOK – Steaua Búkarest
Twente – Bodo/Glimt
AZ Alkmaar – Galatasaray
Fenerbahce – Anderlecht
Midtjylland – Real Sociedad
Fyrri leikirnir eru spilaðir 13. febrúar og seinni leikirnir 20. febrúar.