Real Betis vill fá annan leikmann á láni frá Manchester United eftir að hafa samið við Brassann Antony.
Frá þessu greinir Daily Mail á meðal annars en Antony hefur gert samning út tímabilið á Spáni.
Næsti leikmaðurinn á óskalistanum er bakvörðurinn Tyrell Malacia sem er alls ekki fyrstur á blað undir Ruben Amorim á Old Trafford.
Malacia hefur ekki heillað marga eftir komu til Manchester en meiðsli hafa einnig sett strik í reikninginn.
United er talið vilja selja Malacia áður en janúarglugginn lokar en gæti mögulega lánað hann með möguleika á kaupum eftir tímabilið.