Eins og margir vita þá er knattspyrnan vinsælasta íþróttin í Evrópu og þá sérstaklega í Bretlandi.
William Prins er mikill knattspyrnuaðdáandi en hann er harður stuðningsmaður Aston Villa á Englandi.
Hann var sjálfur mættur í stúkuna í gær er Villa spilaði við Celtic í Meistaradeildinni og upplifði svo sannarlega rússíbana í þeirri viðureign.
Enskir miðlar vekja mikla athygli á að William hafi verið mættur á völlinn en hann sá sína menn vinna 4-2 sigur.
Sigurinn gegn Celtic var þó alls ekki auðveldur en eftir að hafa komist í 2-0 þá jöfnuðu þeir skosku metin áður en heimaliðið fagnaði sigri.
Myndirnar úr stúkunni eru ansi skemmtilegar og má sjá þær hér fyrir neðan.