Mikið hefur verið talað um skort á miðvörðum og að varnarleikurinn sé vandamál hjá karlalandsliði Íslands í knattspyrnu. KSÍ brást við þessu, eins og fyrr segir.
„Það vantar miðverði í A-landslið karla í fótbolta. Hvað gerir KSÍ? Kemur upp sérstökum varnaræfingum fyrir efnilega varnarmenn. Það gæti skilað miðvörðum í landsliðið á næstu árum. Þetta mætti HSÍ líka gera með línumenn og búa markvisst til menn sem hjálpa okkur þar eftir 2-6 ár.“
Þessu veltir Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson, íþróttafréttamaður á RÚV, upp í færslu á X í dag. Handboltagoðsögnin Sigfús Sigurðsson benti honum á að HSÍ hafi eitt sinn verið með æfingar í þessum dúr.
„Það var prógram hjá HSÍ sem hét Stórir Strákar sem var svo blásið af eftir 1 1/2- 2 ár. Óskiljanlegt og þar að auki þá var ekki verið að nýta reynslu okkar stóru strákana sem kunnum línustöðuna og vorum með þeim betri í heiminum í varnaleik. Skandall hjá HSÍ því miður,“ skrifar Sigfús harðorður.
„Þessu þarf að koma á fót aftur strax ef við ætlum að hugsa vel til framtíðar,“ svarar Þorkell þá.
Það var prógram hjá HSÍ sem hét Stórir Strákar sem var svo blásið af eftir 1 1/2- 2 ár.
Óskiljanlegt og þar að auki þá var ekki verið að nýta reynslu okkar stóru strákana sem kunnum línustöðuna og vorum með þeim betri í heiminum í varnaleik.
Skandall hjá HSí því miður.— fusi (@fusi69) January 30, 2025