Króatar pökkuðu Strákunum okkar saman fyrir tæpri viku síðan og svo gott sem hentu þeim út af mótinu í leiðinni. Dagur Sigurðsson er þjálfari Króata og sá Gunnar um leikgreiningar, en hann þekkir íslenska liðið vel eftir að hafa verið aðstoðarþjálfari þess.
„Ég fékk áhugavert símtal í vikunni. Gamall kunningi kvaðst vera ósáttur við aðkomu Gunnars Magnússonar, fyrrverandi aðstoðarþjálfara íslenska karlalandsliðsins í handbolta, að leik Íslands og Króatíu á HM á dögunum. Gunnar mun hafa leikgreint íslenska liðið fyrir Dag Sigurðsson, þjálfara króatíska liðsins,“ skrifar Víðir meðal annars.
„Dagur er þjálfari Króata, þetta er hans vinna og ekkert eðlilegra en að hann leggi sig allan fram til sigurs gegn hvaða mótherjum sem er. Gunnar er hins vegar fyrrverandi aðstoðarþjálfari landsliðsins, er starfandi sem þjálfari Aftureldingar í dag og hefur þjálfað marga af landsliðsmönnunum, eins og t.d. Þorstein Leó Gunnarsson. Ég skil ekkert í honum að svíkja land og þjóð á þennan hátt og afhenda mótherjum Íslands innanhússupplýsingar um íslenska liðið,“ hefur Víðir eftir kunningja sínum.
Víðir tekur undir þetta sjónarmið kunningja síns.
„Eflaust er þarna um vinargreiða að ræða og með allri þeirri tækni sem er til staðar varðandi upptökur og leikgreiningar í dag ætti ekki að breyta miklu hvaðan Dagur fékk upplýsingar um lið Íslands. En þarna má hins vegar setja spurningu við siðferðið. Vissulega er handbolti bara leikur. En yrðum við sátt ef fyrrverandi aðstoðarmaður utanríkisráðherra myndi gera úttekt á varnarmálum Íslands fyrir óvinveitta þjóð? Ég er ekki viss um það.“
Ljóst er að ekki eru allir á sama máli er snýr að aðkomu Gunnars að leiknum gegn Íslandi. Einn af þeim sem er ósammála Víði er Jón Júlíus Karlsson, fyrrum framkvæmdastjóri Grindavíkur.
„Þegar minnimáttarkennd tekur völdin,“ skrifaði hann einfaldlega um pistil Víðis.
Þegar minnimáttarkennd tekur völdin🤏https://t.co/bQ0Eishged
— Jón Júlíus Karlsson (@JonJKarlsson) January 30, 2025