Það er útlit fyrir að Borussia Dortmund sé búið að semja við nýjan þjálfara en hann ber nafnið Niko Kovac.
Erik ten Hag, fyrrum stjóri Manchester United, var orðaður við starfið en hann hafði ekki áhuga á að taka við að svo stöddu.
Gengi Dortmund hefur verið afskaplega slæmt á tímabilinu og var Nuri Sahin í kjölfarið rekinn.
Kovac er að taka við félaginu en hann þekkir vel til Þýskalands og hefur stýrt Wolfsburg, Frankfurt og Bayern Munchen þar í landi.
Ralf Rangnick var einnig orðaður við stöðuna en útlit er fyrir að Kovac verði fyrir valinu.