Það virðist ekki útilokað að fyrrum David Coote snúi aftur í fótboltann í einhverri mynd.
Coote opnaði sig upp á gátt í upphafi vikunnar í viðtali við The Sun. Þar ræddi hann myndbönd sem láku út af honum hrauna yfir Jurgen Klopp, þá stjóra Liverpool, ásamt vini sínum í gleðskap. Viðurkenndi hann einnig að hafa notað kókaín í öðru mynabandi.
Í viðtalinu opinberaði Coote einnig að hann væri samkynhneigður og að hann hafi upplifað mikla vanlíðan undanfarin ár.
Vinur hans ræddi einnig við The Sun og segir að hann eigi að fá annað tækifæri í að vinna við dómgæslu í einhverri mynd.
„Hann hefur þróað með sér ótrúlega hæfileika og þekkingu í starfinu. Það væri algjör synd ef það færi fyrir bí vegna mistaka sem hann gerði þegar hann var undir ótrúlegu álagi,“ sagði vinurinn.
„Hann er í góðu sambandi við hina dómarana og gæti tækið að sér eitthvað hlutverk, til dæmis sem VAR-sérfræðingur.“
Paul Field, formaður dómarasamtakanna, sagðist þá einnig vonast til þess að Coote myndi starfa í enskum fótbolta á ný og Coote sjálfur er opinn fyrir endurkomu, sama í hvaða mynd það yrði.