Real Madrid er sagt undirbúa stórt tilboð í Enzo Fernandez, miðjumann Chelsea, samkvæmt miðlum í heimalandi hans, Argentínu.
Fernandez gekk í raðir Chelsea frá Benfica fyrir 106 milljónir punda fyrir tveimur árum en hefur heilt yfir ekki staðið undir þeim verðmiða. Hann er þó að eiga fínasta tímabil núna.
Real Madrid telur sig vanta leikmann á miðsvæði sitt og er klárt í að bjóða 86 milljónir punda í Fernandez samkvæmt fréttunum frá Argentínu.
Það gæti þó reynst flókið að fá Fernandez í ljósi þess að hann er samningsbundinn Chelsea til 2032. Hann þénar 180 þúsund pund á viku.