fbpx
Fimmtudagur 30.janúar 2025
433Sport

Páll hættir hjá KR

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 29. janúar 2025 16:22

Páll Kristjánsson, formaður knattspyrnudeildar KR (fyrir miðju)

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Páll Kristjánsson mun ekki sækjast eftir endurkjöri sem formaður knattspyrnudeildar KR, en hann hefur gegnt stöðunni í um fimm ár. Þetta staðfesti hann í dag með yfirlýsingu á heimasíðu félagsins.

Páll hefur verið formaður KR síðan eftir leiktíðina 2019. Félagið hefur átt heldur erfitt á þessum árum, þó ekki síst vegna aðstöðumála og þess háttar.

Það hefur verið rætt og ritað um að Magnús Orri Schram taki við stöðu Páls. Magnús var til að mynda þingmaður Samfylkingarinnar frá 2009 til 2013. Hann lék með KR á sínum tíma.

Yfirlýsing Páls
Ágætu félagar í KR.

Ég hef undarinfarin fimm ár notið þess heiðurs að vera í forsvari fyrir knattspyrnudeild KR. Ég hef unnið þar með öflugum hópi fólks með það markmiði að vinna veg deildarinnar sem mestan. Ég hef haft hagsmuni félagsins að leiðarljósi, hvort sem er til skemmri eða lengri tíma.

Á komandi aðalfundi knattspyrnudeildar mun ég ekki sækjast eftir endurkjöri til formanns. Það er mikilvægt að þekkja sinn vitjunartíma og ég tel að tími sé kominn á að hleypa nýjum og ferskum formanni að.

Það eru spennandi tímar framundan hjá okkur. Við erum stærsta íþróttafélag landsins, með öflugustu sveit stuðningsmanna og það sem KR gerir vekur alltaf athygli og umtal.

Verulegar breytingar hafa verið gerðar og ásýnd deildarinnar er gjörbreytt. Þá er okkur dýrmætt að hafa fengið þá Óskar Hrafn og Geir Þorsteinsson inn í félagið að nýju. Ráðning þessara KR-inga verður deildinni mikið heillaspor.

Verulega umbætur eru framundan á aðstöðu KR og á komandi tímabili munum við leika á nýjum gervigrasvelli og þannig stórbæta aðstöðu flokka okkar. KR verður aftur það félag sem önnur félög máta sig við. Jafnframt þessu verður æfinga- og keppnisaðstaða allra okkar iðkenda verulega bætt. Á afmælisdag KR þann 16. febrúar verður tekin skóflustunga að nýju knatthúsi sem og að húsbyggingu sem mun sameina félagsstarf KR í Frostaskjóli.

Það hefur verið mér hjartans máls að bæta aðstöðu félagsins og þau skref sem nú hafa verið stigin eru gríðarstór. Ég vil þakka núverandi borgarstjóra fyrir þann velvilja og skilning sem hann hefur sýnt okkur KR í þeirri vegferð sem nú er hafin.

Ég lít stoltur til baka. Nýr formaður tekur við KR á fleygiferð. Liðum okkar er stjórnað af bestu þjálfurum landsins. Yngri flokka starfið blómstrar. Fjöldi KR-inga eru í yngri landsliðum og nú eru framkvæmdir og uppbygging KR svæðisins hafin. KR býr að einstökum mannauð, innan félagsins og þá ekki síður í bakvarðasveit, stuðningsmönnum, iðkendum og foreldrum. Fyrir framlag þeirra allra þakka ég.

Ég hef verið KR-ingur alla mína ævi, fæddur og uppalinn í KR. Iðkandi, stuðningsmaður, sjálfboðaliði, stjórnarmaður, formaður. Það hafa verið og eru forréttindi.

Stoltur þakka ég fyrir mig.

Áfram KR

Páll Kristjánsson

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Kærastan leyfir honum að sofa hjá öðrum konum en setur þessi skilyrði

Kærastan leyfir honum að sofa hjá öðrum konum en setur þessi skilyrði
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Villa hafnaði stóru tilboði frá Arsenal

Villa hafnaði stóru tilboði frá Arsenal
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Stórsigur á Wales í síðasta leik Íslands

Stórsigur á Wales í síðasta leik Íslands
433Sport
Í gær

Ancelotti tjáir sig um stöðu Vinicius og orðróma um Sádi-Arabíu

Ancelotti tjáir sig um stöðu Vinicius og orðróma um Sádi-Arabíu
433Sport
Í gær

Urðaði yfir allt og alla en er búinn að finna sér nýja vinnuveitendur

Urðaði yfir allt og alla en er búinn að finna sér nýja vinnuveitendur
433Sport
Í gær

Fann ekki köttinn sinn og leitaði út um allt – Kærastinn vissi hver skelfilegur sannleikurinn var en sagði ekki orð

Fann ekki köttinn sinn og leitaði út um allt – Kærastinn vissi hver skelfilegur sannleikurinn var en sagði ekki orð
433Sport
Í gær

Amorim orðinn vel þreyttur á þessum leikmanni United og íhugar að losa sig við hann

Amorim orðinn vel þreyttur á þessum leikmanni United og íhugar að losa sig við hann