Brasilíska stórstjarnan Neymar fær leyfi hjá kærustu sinni, Bruna Biancardi, til að vera með öðrum konum og stunda með þeim kynlíf en frá þessu er greint í brasilískum miðlum.
Neymar er mikið á forsíðunum þessa dagana en hann hefur yfirgefið lið Al-Hilal í Sádi Arabíu og er að halda aftur til heimalandsins.
Biancardi og Neymar hafa verið saman í þónokkurn tíma og eiga saman barn og var fjölskyldan búsett saman í Sádi.
Brasilískir miðlar segja að Neymar hafi fengið grænt ljós á að sofa hjá öðrum konum en þarf að uppfylla ákveðin skilyrði.
Neymar má ekki kyssa þessar konur á muninn og verður þá að nota verjur í hvert einasta sinn sem hann stundar þetta umtalaða kynlíf.
Biancardi var um tíma alls ekki hrifinn af þessari hugmynd en ákvað að slá til þar sem Neymar var um tíma búsettur einn í Frakklandi er hann lék með Paris Saint-Germain.
Neymar er einn ríkasti knattspyrnumaður sögunnar en hann er dýrastur allra tíma og kostaði um 200 milljónir punda á sínum tíma.