Spænska knattspyrnusambandið hefur framlengt samning landsliðsþjálfarans Luis de la Fuente fram yfir EM 2028.
La Fuente, sem er 63 ára gamall, vann sig upp stigan í landsliðsþjálfun á Spáni, frá unglingaliðum upp í aðalliðið, en hann tók við því eftir HM í Katar 2022.
Gerði La Fuente Spánverja að Evrópumeisturum í Þýskalandi síðasta sumar og er nú búinn að krota undir samning sem heldur honum hjá spænska sambandinu út HM 2026 og EM 2028.
🇪🇸 Luis de la Fuente renews his contract as Spain national coach until 2028.
➡️ The @RFEF shows its backing for the @SEFutbol coach who lead the country to Euro 2024 and Nations League glory.
ℹ️ https://t.co/eFgsKEcIHh pic.twitter.com/lL9DVaa1hm
— Spanish Football (@SpainIsFootball) January 27, 2025