Chelsea hefur áhuga á Alejandro Garnacho, sem er sterklega orðaður við brottför frá Manchester United í þessum mánuði.
Garnacho hefur verið inn og út úr liðinu hjá Ruben Amorim síðan Portúgalinn tók við á Old Trafford. Undanfarna daga hefur hann sterklega verið orðaður við Napoli.
Chelsea hefur hins vegar einnig augastað á honum. L’Eqipe segir félagið íhuga tilboð og þá segir David Ornstein á The Athletic einnig að Chelsea hafi áhuga en að allt sé á byrjunarstigi.
Chelsea er í leit að kantmanni í þessum mánuði en Garnacho yrði líklega ekki ódýr. Talað er um að United vilji 60 milljónir punda fyrir hann.