Víkingur hefði viljað mun hærri upphæð frá KSÍ fyrir Arnar Gunnlaugsson en raun ber vitni. Þetta segir Heimir Gunnlaugsson, formaður knattspyrnudeildar félagsins.
Arnar var í gær kynntur sem landsliðsþjálfari Íslands, en það hafði legið í loftinu í langan tíma. Viðræðurnar gengu vel fyrir sig.
„Faglega unnið af öllum aðilum. KSÍ var í góðum samskiptum við mig, Eysteinn Pétur framkvæmdastjóri og Þorvaldur formaður. Við fórum yfir það hvað þurfti til og auðvitað koma ákveðnar skaðabætur til Víkings, ég má nú ekki tjá mig um neinar upphæðir í því samhengi en þetta gekk nokkuð vel fyrir sig,“ segir Heimir í samtali við Vísi.
Það kom fram á Fótbolta.net á dögunum að upphæðin sem KSÍ greiði fyrir Arnar sé á bilinu 10-15 milljónir. Heimir fór ekki nánar út í nákvæmar upphæðir, en sem fyrr segir er félagið ekki sátt við þá upphæð sem það fékk.
„Nei við erum það ekki og ég hefði viljað fá miklu, miklu hærri upphæð fyrir Arnar en þú nefnir. En eins og við ræddum áðan þá ætluðum við ekki að eyðileggja draumastarfið hans Arnars. Ég held að niðurstaðan sé eitthvað sem að allir geti verið sáttir við,“ segir Heimir enn fremur við Vísi.