Hinn 35 ára gamli Muller hefur spilað allan ferilinn með Bayern. Hafa viðræður um nýjan samning staðið yfir undanfarið en virðast aðilarnir ekki ætla að ná saman.
Það er því útlit fyrir að Muller fari frítt í sumar, eða þá leggi jafnvel skóna á hilluna.
Það þykir ekki ólíklegt að sókarmaðurinn leiti út fyrir Evrópu að næsta skrefi á ferlinum, en það er til að mynda áhugi frá MLS-deildinni vestan hafs.