Ísland tapaði 3-1 fyrir Kósóvó í seinni leik liðanna í umspili um sæti í B-deild Þjóðadeildarinnar, samanlagt 5-2 og Strákarnir okkar fallnir í C-deild.
Reynsluboltinn Jóhann Berg Guðmundsson var kallaður inn í hópinn fyrir seinni leikinn í gær, en hann hefur glímt við meiðsli undanfarið. Hann kom þó ekkert við sögu og var Arnar spurður út í þetta í viðtali við Stöð 2 Sport eftir leik í gær.
„Ég taldi að þessi leikur væri ekki alveg mómentið fyrir hann eftir að hafa tekið eina æfingu með okkur, þetta var baráttuleikur. Mig langaði líka að sjá hvernig Kristian myndi plumma sig. Ég veit allt um Jóa Berg, hann er lykilmaður í okkar liði,“ sagði Arnar um málið.
Þetta er tekið fyrir í þætti Þungavigtarinnar í dag.
„Of mikil harka fyrir Jóhann Berg Guðmundsson, sem er búinn að spila í Championship og ensku úrvalsdeildinni síðastliðinn áratug?“ segir Kristján í þætti dagsins.
„Hvað ætli Jói hugsi þegar hann horfir á þetta viðtal? Nennir hann að mæta í landsliðið fyrir þennan þjálfara? Ég bara stórefa það.“
Þáttastjórnandinn Ríkharð Óskar Guðnason birti myndskeið af eldræðu Kristján á X og má sjá hana hér að neðan.
Þungavigt dagsins er í anda við veðrið úti. Dimm og köld.https://t.co/hbaGTQfGay er staðurinn. pic.twitter.com/2AijQ3Ix16
— Rikki G (@RikkiGje) March 24, 2025