Það er búist við því að Sverre Nypan, eftirsóttur miðjumaður Rosenborg í Noregi, haldi kyrru fyrir í bili. David Ornstein á The Athletic greinir frá.
Nypan, sem er 18 ára gamall og mikið efni, hefur verið orðaður við Arsenal, Aston Villa og Manchester City en fer ekki neitt í janúar samkvæmt nýjustu fréttum.
Nýtt tímabil í Noregi hefst í mars og er spilað þar til í nóvember. Mun Nypan þá allavega taka fyrri hluta leiktíðar með Rosenborg, en ekki er útilokað að hann fari í sumar.
Það hefur verið rætt og ritað um að Nypan kosti um 10 milljónir punda.