Ofurtölvan hefur enn á ný stokkað spilin og nú í kjölfar þess að deildarkeppni Meistaradeildarinnar kláraðist í gær.
Samkvæmt henni er Arsenal, eins og efir síðustu umferð, óvænt líklegasti sigurvegarinn með 24 prósent líkur.
Liðið hafnaði í þriðja sæti deildarkeppninnar, 2 stigum á eftir toppliði Liverpool, sem þykir einmitt næstlíklegasta liðið til að vinna keppnina með 19 prósent.
Þar á eftir koma Real Madrid og Barcelona, en ofurtölvan spáir einnig fyrir líkum á að lið komist áfram á ákveðið stig Meistaradeildarinnar, eins og sjá má hér að neðan.