Það eru ágætis líkur á því að Chelsea sé að fá inn sóknarmann fyrir lok janúargluggans sem endar þann þriðja febrúar.
Þónokkrir blaðamenn greina frá því að Mathys Tel, leikmaður Bayern Munchen, vilji komast burt frá félaginu fyrir lok gluggans.
Um er að ræða mjög efnilegan leikmann sem er 19 ára gamall en Chelsea hefur allavega tvívegis spurst fyrir um Frakkann.
Tel spilaði 41 leik fyrir Bayern á síðustu leiktíð og skoraði tíu mörk en á þessu tímabili hefur hann aðeins fengið tíu tækifæri.
Tel er samningsbundinn til ársins 2029 og myndi kosta Chelsea mjög háa upphæð í þessum glugga.