Aðeins tveir raunhæfir kostir standa Marcus Rashford til boða, vilji hann yfirgefa Manhcester United fyrir lok félagaskiptagluggans á mánudag. Independent fjallar um málið.
Rashford hefur verið úti í kuldanum á Old Trafford frá því fljótlega eftir að Ruben Amorim tók við sem stjóri síðla hausts. Vill hann ólmur komast burt og hefur hann opnað sig um að vilja prófa eitthvað nýtt.
Enski sóknarmaðurinn hefur verið orðaður víða, einna helst til Barcelona. Það er einmitt einn af tveimur kostunum sem koma til greina samkvæmt Independent. Hinn er lánssamningur við Juventus á Ítalíu út þessa leiktíð.
Vandamálið fyrir hvaða félag sem ætlar að fá Rashford er launapakki hans. Hann þénar 300 þúsund pund á viku hjá United og þó nokkur félög veigra sér við að greiða jafnvel helminginn af því.