Hjá Manchester United eru menn bjartsýnir á að geta samið við Lecce um bakvörðurinn Patrick Dorgu í dag eða á morgun.
Dorgu er tvítugur og getur einnig spilað á köntunum. Hann vill ólmur fara til United og vill Ruben Amorim fá hann til að spila stöðu vinstri vængbakvarðar í kerfi sínu á Old Trafford.
Lecce vill hins vegar fá 40 milljónir evra fyrir leikmanninn og United fær Danann unga ekki nema félagið gangi að verðmiðanum. Það hefur ekki tekist hingað til.
United undirbýr hins vegar nýtt tilboð og er félagið bjartsýnt á að ná samkomulagi við Lecce.
Dorgu hefur þegar samið um eigin kjör á Old Trafford. Lecce, sem er í harðri fallbaráttu í Serie A, vill hins vegar helst halda leikmanninum fram á sumar en það er útlit fyrir að hann fari til United.
🚨⏳ Manchester United feel they can get Patrick Dorgu deal agreed in 24/48h!
Confident and optimistic after further talks with new official bid coming soon. pic.twitter.com/3fVkqAQk5G
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) January 28, 2025