Mario Balotelli er nálægt því að yfirgefa ítalska félagið Genoa eftir aðeins tvo mánuði þar.
Balotelli, sem er 34 ára gamall, hefur komið víða við á ferlinum og gekk í raðir Genoa í haust eftir að hafa yfirgefið Adana Demirspor í Tyrklandi öðru sinni.
Framherjinn hefur þó aðeins komið við sögu í sex leikjum í Serie A frá komu sinni, alltaf sem varamaður.
„Mario vill spila og hann er ekki að komast að hér. Við leitum að góðri niðurstöðu fyrir alla,“ segir Marco Ottolini, yfirmaður knattspyrnumála hjá Genoa.
Balotelli hefur spilað fyrir lið á borð við Manchester City, Liverpool, Inter og AC Milan. Þrátt fyrir mikla hæfileika hefur vesen á honum utan vallar gjarnan aftrað honum.