Ruben Amorim, stjóri Manchester United, skaut föstum skotum á Marcus Rashford á blaðamannafundi eftir 0-1 sigur liðsins á Fulham í ensku úrvalsdeildinni í gær.
Í ellefta leiknum í röð var Rashford utan hóps hjá Amorim, en hann er algjörlega úti í kuldanum hjá Portúgalanum og má finna sér nýtt félag.
„Það er alltaf sama ástæðan. Þetta snýst um æfingarnar á hverjum degi. Ef hlutirnir breytast ekki breyti ég ekki,“ sagði Amorim.
Portúgalinn sagði svo enn fremur að hann myndi frekar nota markmannsþjálfara sinn, hinn 63 ára gamla Jorge Vital, heldur en Rashford í dag.
„Við getum notað alla leikmenn sem leggja inn vinnuna og gera réttu hlutina. Ég myndi frekar velja Vital í liðið en leikmann sem leggur ekki á sig það sem til þarf.“
Þess má geta að Rashford birti færslu í gærkvöldi þar sem hann óskaði liðsfélögum sínum til hamingju með sigurinn, sem fleytti United upp í 12. sæti deildarinnar.