Sheffield Wednesday á Englandi hefur svo sannarlega fengið á baukinn fyrir þann mat sem félagið býður upp á sínum leikjum.
Um er að ræða lið í næst efstu deild Englands en liðið var um tíma í efstu deild og á ansi góða sögu.
Sheffield er í dag að rukka stuðningsmenn sína um 900 krónur fyrir svokallaða ‘Philly cheesesteak’ sem þykir ótrúlega ógirnileg.
Þessi ‘steikarsamloka’ hefur vakið athygli á netinu en einn netverji birti mynd af því sem hann fékk í hendurnar frá eldhúsinu.
Bandaríkjamenn hafa verið duglegir í að tjá sig eftir að hafa séð myndina en um er að ræða samloku sem er vinsæl í þeirra heimalandi.
,,Þið getið ekki verið að birta svona myndir þegar ég er að borða,“ skrifar einn við færsluna og bætir annar við: ,,Er þetta tré?“
Myndina má sjá hér.
Philly cheesesteak at Sheffield Wednesday (@swfc)
💷 £5 pic.twitter.com/jIZ5WyZSoh
— Footy Scran (@FootyScran) January 22, 2025