Ruben Amorim, stjóri Manchester United, var spurður út í framtíð sóknarmannsins Marcus Rashford í gær.
Það er mikið talað um Rashford þessa dagana en hann er talinn vilja komast burt frá United en einnig var greint frá því að hann væri nú tilbúinn að spila fyrir félagið á ný.
Rashford er ekki sá vinsælasti á Old Trafford í dag og eru góðar líkur á að enska stórliðið selji hann endanlega í þessum glugga eða þá láni hann annað.
Amorim segist vita lítið um framtíð enska landsliðsmannsins sem er á gríðarlega háum launum í Manchester.
,,Ég veit það ekki, í alvörunni, ég veit það ekki,“ sagði Amorim á blaðamannafundi.
,,Það eru átta dagar í lokun strákar. Við sjáum hvað gerist fyrir lok gluggans og svo getum við rætt málin.„