Það eru ekki margir knattspyrnumenn sem snúa baki við draumi sínum um frama á fótboltavellinum til þess að gerast klámstjörnur. Annað eins hefur þó komið fyrir.
Hér fyrir neðan eru sögur tveggja leikmanna sem yfirgáfu fótboltann og fóru í klámiðnaðinn.
Á unglingsárunum var Mountain í herbúðum Southampton og æfði í akademíunni þar. Hann vakti til að mynda áhuga liða eins og Chelsea, Tottenham og West Ham á sínum tíma.
Fyrrum knattspyrnumaðurinn og þjálfarinn Alan Ball sagði föður Mountain að hann gæti náð langt þegar hann var aðeins 12 ára gamall.
Ferli Mountain sem knattspyrnumaður lauk hins vegar þegar hann var 16 ára gamall vegna slæmra meiðsla. Þá sneri hann sér að trésmíði.
En svo komst Mountain í tæri við umboðsmann í klámiðnaðinum í gegnum kærustu sína á þeim tíma. Eitt leiddi af öðru og hann fór að starfa í bransanum.
„Ég vissi ekki við hverju ég átti að búast en ég var fullur sjálfstrausts. Ég var ekki stressaður fyrir kynlífs-hlutanum en mér fannst erfitt að tala fyrir framan myndavél. Ég gat ekki stjórnað andliti mínu af stressi,“ sagði Mountain.
Hann segir mömmu sinni ekki hafa litist á blikuna þegar hann byrjaði í klámi en að pabbi hans hafi hvatt hann áfram.
Mountain er í dag fertugur og ein hæst launaða karlkyns klámstjarna í Bretlandi.
24 ára gamall lék Iovinella með ASD Calcio í D-deildinni á Ítalíu. Hann langaði hins vegar að eignast meiri pening. Hann sótti þá um að fá að leika í klámmynd.
Hann fékk starfið og flutti síðan til Búdapest í Ungverjalandi til að koma sér inn í bransann þar.
„Þetta er ekki eins og að vera í rúminu með maka. Þú þarft að leggja hart að þér,“ sagði Iovinella um starfið.
Í dag er hann 31 árs gamall, býr enn í Búdapest og líður vel.