Það stefnir allt í að Ísland muni fagna sigri gegn Svartfjallalandi á Laugardalsvelli í kvöld.
Ísland komst yfir undir lok fyrri hálfleiks er Orri Steinn Óskarsson skoraði með skalla eftir hornspyrnu.
Ísland tvöfaldaði forystuna í seinni hálfleik en Jón Dagur Þorsteinsson kom þá okkar mönnum í 2-0.
Það var einnig eftir hornspyrnu en Gylfi Þór Sigurðsson átti sendinguna sem rataði á kollinn á Jóni Degi.
Markið má sjá hér.
🔔⚽️ GOAL | Jón Dagur Þórsteinsson | 🇮🇸 Iceland 2-0 Montenegro 🇲🇪
Assist : Gylfi Sigurðssonpic.twitter.com/YLNwzzh6hf
— Goals Xtra (@GoalsXtra) September 6, 2024