Alan Shearer, markahæsti leikmaður í sögu ensku úrvalsdeildarinnar, telur að Marcus Rashford hafi átt að yfirgefa Manchester United fyrir tímabilið.
Rashford var ekki heillandi á síðustu leiktíð en fyrir það skoraði hann 30 mörk í 56 leikjum eða tímabilið 2022-2023.
Rashford skoraði aðeins átta mörk í 43 leikjum í fyrra og hefur farið hægt af stað á nýrri leiktíð.
Shearer hefur áhyggjur af landa sínum og sér ekki hvernig hann á að vinna sér inn sæti í enska landsliðshópnum á ný eftir að hafa verið skilinn eftir fyrir EM 2024.
,,Eins og hann er að spila í dag þá sé ég ekki hvernig hann á að koma enska landsliðsferlinum af stað á ný,“ sagði Shearer.
,,Ég þekki ekki hvernig hans persónuleiki er eða hvernig hann er á æfingum en það er bara ein leið til baka og það er að æfa og vera með rétt viðhorf.“
,,Ef ég horfi á stöðuna héðan þá hefði hann átt að yfirgefa Manchester United því hann hefur lítið gert í langan tíma af einhverjum ástæðum.“
,,Hlutirnir eru ekki að ganga upp fyrir hann eins og er en það er bara Marcus sem getur svarað því hvernig hann finnur sitt gamla form.“