West Ham er ekki hætt að leita að leikmönnum þrátt fyrir að félagaskiptamarkaðurinn sé lokaður.
Þannig geta félög enn samið við leikmenn sem eru án félags og það er nákvæmlega það sem West Ham er að gera.
West Ham vill bæta við miðverði eftir að hafa lánað Kurt Zouma og Nayef Aguerd í síðustu viku.
Félagið er að skoða það að semja við Joel Matip fyrrum varnarmann Liverpool sem er enn án félags.
Þá er John Egan einnig til skoðunnar en báðir eru þeir í viðræðum við West Ham um kaup og kjör.