Willum Þór Willumsson tók með sér markaskóna til leiks í dag en Birmingham er að mæta Peterbrough á heimavelli í þriðju efstu deild á Englandi.
Gestirnir frá Peterbrough komust í 0-2 áður en Willum jafnaði.
Willum mætti á nærstöngina og skoraði þetta góða mark en Willum var keyptur til Birmingham í sumar.
Alfons Sampsted er á meðal varamanna hjá Birmingham í leiknum.
Mark Willums má sjá hér að neðan.
WILLUMSSON
BLUES 1 – PET 2 pic.twitter.com/5a7LxLTQJb— CMF (@Ohffs1984) September 28, 2024