Ísak Bergmann Jóhannesson var hetja Dusseldorf í gær sem spilaði við Greuther Furth í Þýskalandi.
Um var að ræða leik í næst efstu deild en honum lauk með 2-1 sigri Dusseldorf á útivelli.
Ísak spilaði allan leikinn fyrir Dusseldorf og þá spilaði Valgeir Lunddal Friðriksson 80 mínútur.
Ísak skoraði sigurmark Dusseldorf á 91. mínútu en hann kom boltanum í netið af vítapunktinum.
Vítaspyrna Ísaks var stórbrotin eins og má sjá hér fyrir neðan.
👤 Ísak B. Jóhannesson (f.2003)
🇩🇪 Düsseldorf
🆚 Greuther Fürth🇮🇸 #Íslendingavaktin pic.twitter.com/QnKfoXDueR
— Áhugaverðar staðreyndir um íslenska knattspyrnu (@OReyndir) September 27, 2024