Carlo Ancelotti þjálfari Real Madrid hefur samkvæmt fréttum á Spáni gefist upp á Vinicius Jnr leikmanni liðsins. Agaleysi hans er að pirra þjálfarann.
Sport á Spáni segir að Ancelotti sé endalaust búin að reyna að ræða við Vini Jr um hegðun hans innan sem utan vallar.
Hefur það litlu skilað og hefur kantmaðurinn fengið þrjú gul spjöld en hann hefur á sama tíma lagt upp sex mörk og skorað þrjú mörk.
Í fréttinni segir einnig að leikmenn Real Madrid séu orðnir þreyttir á Vini Jr sem er erfiður í öllum samskiptum.
Ancelotti er vandi á höndum að halda öllum stjörnum liðsins góðum en hann á að hafa rætt ítrekað við Vini Jr en það án árangurs að hans mati.