Keflavík og Afturelding mætast í úrslitaleik umspils Lengjudeildarinnar á Laugardalsvelli næstkomandi laugardag klukkan 14:00
Sigurður Hjörtur Þrastarson mun dæma leikinn en talið er að leikurinn sé 50 milljóna króna virði.
LIðið sem vinnur leikinn vinnur sér sæti í Bestu deildinni og með því koma auknar tekjur inn í reksturinn.
Miðasala fer fram á tix.is þar sem hægt er að kaupa miða annars vegar á svæði Keflavíkur og hins vegar á svæði Aftureldingar.
Aðgangseyrir er 500 kr. fyrir 16 ára og yngri og 2500 kr. fyrir 17 ára og eldri. (hækkar í kr. 3.000 á leikdag).