Diogo Dalot hefur aldrei farið leynt með það að hann elski landa sinn Cristiano Ronaldo en þeir leika saman í portúgalska landsliðinu.
Dalot og Ronaldo eru góðir vinir en þeir voru einnig saman hjá Manchester United um tíma þar sem sá fyrrnefndi spilar í dag.
Ronaldo er einn besti fótboltamaður sögunnar en hann er í dag í Sádi Arabíu og er kominn á seinni ár ferilsins.
Dalot ræddi við Rio Ferdinand, fyrrum samherja Ronaldo, og hafði ekkert nema góða hluti að segja um goðsögnina.
,,Ég lærði mikið frá honum og ég veit líka að þið eruð góðir vinir. Í hvert einasta skipti sem ég kveð hann þá líður mér eins og ég sé ríkari,“ sagði Dalot.
,,Ég er ekki að tala um peninga, nei hann er ekki að láta mig hafa peninga. Á persónulegu stigi, ef honum líður vel þá mun hann kenna þér eitthvað.“