Oliver Heiðarsson sóknarmaður ÍBV mun á næstunni fara til Englands og æfa með bæði Watford og Everton. Oliver var markahæsti leikmaður Lengjudeildarinnar í sumar.
Frá þesu sagði bróðir hans, Aron Heiðarsson í hlaðvarpinu Betkastið.
Oliver mun byrja á því að æfa með Watford en faðir hans Heiðar Helguson er goðsögn hjá félaginu eftir tíma sinn þar.
Hann mun svo halda til Everton og æfa með enska úrvalsdeildarfélaginu þar sem Sean Dyche er stjóri liðsins en Dyche var samherji Heiðars í Watford.
Oliver var frábær með ÍBV í Lengjudeildinni í sumar þar sem liðið vann deildina og tryggði sér aftur sæti í Bestu deildinni.
@betkastid Íslendingur mættur í Everton? #fyp #foryou #everton #fótbolti #íbv #capcut