Hermann Hreiðarsson var gestur í hlaðvarpsþættinum Dr. Football í dag og fór þar yfir hin ýmsu mál ásamt Hjörvari Hafliðasyni.
Hermann er fyrrum landsliðsmaður og er þjálfari í dag en hann tilkynnti í dag að hann væri hættur með ÍBV eftir að hafa komið liðinu í efstu deild.
Hjörvar spurði Hermann að athyglisverðri spurningu í þættinum sem tengdist harðjaxlinum Ólafi Þórðarsyni.
Hermann er sjálfur harður í horn að taka en þeir lentu í slagsmálum í landsliðsverkefni á sínum tíma sem endaði með miklum látum.
,,Ég rúllaði honum upp! Nei, nei við tókum stórskemmtileg slagsmál einu sinni. Það var í fyrstu landsliðsferðinni og það var leikur daginn eftir við Írland,“ sagði Hermann.
,,Ég náði honum eitthvað á æfingu og Siggi Jóns og þeir fóru aðeins að fíflast í honum með það svo eftir æfingu var farið upp á herbergi og í sturtu þar.“
,,Ég var með Helga Sig í herbergi og hann hendir honum út, læsir hurðinni og við við slógumst þar í 40 mínútur. Herbergið var handónýtt á eftir.“
Hermann Hreiðarsson var gestur hjá Dr. Football í morgun. Hættur með ÍBV og fór yfir sviðið.
Þátturinn í mynd á Youtube: https://t.co/KrxvxJERf5 pic.twitter.com/DOWT9jp8DB
— Dr. Football Podcast (@drfootballpod) September 27, 2024