Knattspyrnudeild Víkings og Gísli Gottskálk Þórðarson hafa framlengt samning sinn út árið 2027. Gísli kom til félagsins frá ítalska félaginu Bologna sumarið 2022 og hefur hann leikið 64 leiki fyrir Víking og skorað í þeim 3 mörk.
KR reyndi ítrekað í sumar að kaupa Gísla af Víkingi en það án árangurs, öllum tilboðum var hafnað og Gísli verður áfram í Víkinni.
Gísli hefur fengið stórt hlutverk í liði Víkings á þessu tímabili og þá sérstaklega eftir meiðsli Pablo Punyed og hefur spilað frábærlega.
Gísli Gottskálk hefur verið fastamaður í U-19 landsliði Íslands og braut sér leið inn í U-21 landsliðið fyrr á árinu. Gísli varð Mjólkurbikarmeistari með Víking árið 2022 og Íslands- og Mjólkurbikarmeistari árið 2023.
„Nýr samningur Gísla við Víking er til þriggja ára og gleður það Knattspyrnudeild Víkings að tilkynna með mikilli hamingju að Gísli Gottskálk Þórðarson verður leikmaður félagsins út árið 2027.“ segir í tilkynningu Víkings.