Undrabarnið Endrick hefur beðið liðsfélaga sína afsökunar á hegðun sinni gegn Alaves um helgina.
Frá þessu greinir Marca en Endrick var heppinn að fá ekki rautt spjald eftir innkomu sína í 3-2 sigri.
Endrick kom inná sem varamaður er 20 mínútur voru eftir og þá var staðan 3-0 fyrir hans mönnum.
Endrick braut hins vegar mjög klaufalega af sér stuttu seinna og eru flestir sammála um það að hann hafi átti að fá rauða spjaldið.
Táningurinn viðurkennir að hann hafi mætt of æstur til leiks og hefði getað kostað sitt lið sigurinn.
Tíu menn Real hefðu átt í vandræðum með Alaves sem minnkaði muninn að lokum og var ekki langt frá því að jafna 11 gegn 11.