Jermaine Jenas fyrrum leikmaður enska landsliðsins í knattspyrnu hefur látið lítið fyrir sér fara síðustu vikur eftir eftir að breska ríkisútvarpið rak hann úr starfi fyrir perraskap.
Jenas hafði verið að klæmast i samstarfskonu sinni en Jenas er giftur og á börn með eiginkonu sinni sem stendur með honum í þessum stormi.
Jenas hefur sleppt því að tjá sig um málið en kom á Instagram í gær og vildi þakka fyrir stuðninginn í gegnum málið.
„Ég hef auðvitað ekki verið á samfélagsmiðlum. Þetta var tímasetningin,“ sagði Jenas sem var úti að labba með hund sinn þegar hann hóf að tala.
„Ég er að reyna að segja eitthvað mikilvægt og þá ákveður hann að byrja að kúka. Ég ræði við ykkur eftir smá þegar ég hef tekið þetta upp,“ sagði Jenas.
Hann gat svo farið að ræða málið. „Ég taldi það mikilvægt að koma hingað og láta ykkur vita og þakka fyrir allan stuðninginn undanfarið,“ sagði Jenas.
„Þetta hefur verið erfitt en ég læri af þessu og verð betri. VIð erum manneskjur og þú lærir af þessu. Þú verður betri persóna, það er það sem er mikilvægt.“
„Ekkert okkar er fullkomið og ég verð bara að finna leið til að halda áfram, sjá um börnin og fjölskyldu mína á sem bestan hátt. Ég mun reyna það, ég vildi bara þaka ykkur fyrir allan stuðninginn.“
,,Ég hætti ekki að hugsa um þessar myndir af þér þegar þú sendir þær. Þegar þær berast þá hugsa ég með mér… Loksins fæ ég að sjá þennan líkama,“ á Jenas að hafa sagt við samstarfskonu sína í skilaboðum.
Nokkrum dögum seinna þá sagði konan Jenas að hún og vinkona sín ætluðu að skemmta sér á ströndinni og hafði hann þetta að segja.
,,Allt í lagi… Ég vil sjá þig í bikiní, þú getur ekki skammað mig fyrir það.“
Seinna sagði konan við Jenas að hún væri ekki hrifinn af því að senda myndir í gegnum síma og þá svaraði hann:
,,Ég veit það en þú veist hvernig þetta er þegar þú ert í burtu. Alveg frá því ég sá þig fyrst þá hef ég hugsað um þig.“
Seinna sendi Jenas konunni nektarmyndir en hún segist sjálf hafa verið í áfalli eftir ákveðin skilaboð stjörnunnar.