Tottenham vann afskaplega góðan sigur í Evrópudeildinni í kvöld er liðið mætti Qarabag.
Tottenham lenti í áfalli eftir átta mínútur en Radu Dragusin fékk þá beint rautt spjald og heimamenn manni færri.
Það kom þó ekki í vel fyrir sigur en Brennan Johnson, Pape Matar Sarr og Dominic Solanke skoruðu í 3-0 sigri.
Qarabag gat minnkað muninn í 2-1 á 58. mínútu en Toral Bayramov klikkaði þá á vítaspyrnu.
Kristian Nökkvi Hlynsson kom inná sem varamaður hjá Ajax og spilaði 24 mínútur í frábærum 4-0 heimasigri gegn Besiktas.
Markaleikur kvöldsins var í Þýskalandi þar sem Eintracht Frankfurt og Viktoria Plzen gerðu 3-3 jafntefli.