Framtíð Erik ten Hag sem stjóra Manchester United er ekki örugg og nokkur slæm úrslit gætu hreinlega kostað þann hollenska starfið.
United skoðaði það að reka Ten Hag í sumar en ákvað á endanum að halda sig við Ten Hag.
Enskir miðlar segja í dag að forráðamenn United séu farnir að fylgjast með gangi mála hjá Eddie Howe stjóra Newcastle.
Óvissa er með framtíð hans hjá Newcastle, hann var ósáttur við það að Newcastle studdi ekki við hann á leikmannamarkaðnum í sumar.
Howe vann með Dan Asworth yfirmanni knattspyrnumála hjá United í dag en United keypti hann af Newcastle í sumar.