Arsenal flaug áfram í deildarbikarnum í kvöld þegar liðið vann góðan 5-1 sigur á Bolton á heimavelli.
Hinn ungi miðjumaður Ethan Nwaneri skoraði tvö mör, Declan Rice og Kai Havertz skoruðu einnig eitt. Það var svo Raheem Sterling sem skoraði sitt fyrsta mark fyrir félagið.
Arsenal komið áfram í næstu umferð.
Á sama tíma vann Liverpool 5-1 sigur á West Ham þar sem Federico Chiesa byrjaði sinn fyrsta leik.
Diogo Jota skoraði tvö mörk líkt og Cody Gakpo en Mo Salah skoraði eitt en Jarell Quansah setti boltann í eigið net hjá Liverpool og var það eina mark West Ham í leiknum.