Marcus Rashford sóknarmaður Manchester United hefur fest kaup á Bentley bifreið sem bílstjóri hans mun nota næsta hálfa árið.
Rashford var að missa prófið í hálft ár og vill láta sér líða vel í aftursætinu.
Um er að ræða Flying Spur Azure bíl frá Bentley og um er að ræða nýjustu týpuna. Kostar bílinn 34 milljónir í Bretlandi.
Rashford var tekinn af lögreglunni í júlí þegar hann keyrði alltof hratt en þetta var ekki fyrsta brot hans.
Fékk Rashford 200 þúsund krónur í sekt og missti réttindi sín í hálft ár.
Rashord ætlar ekki að láta það stoppa sig og hefur fest kaup á glæsilegum bíl að láta sér líða vel á leið á æfingar.