Ivan Toney skoraði sitt fyrsta mark og sína fyrstu tvennu fyrir lið Al Ahli í gær sem mætti Damac í Sádi Arabíu.
Toney er 28 ára gamall en hann gerði samning við Al Ahli í sumar eftir dvöl hjá Brentford á Englandi.
Hann lofaði því nokkrum dögum fyrir leik að hann myndi skora tvö í viðureigninni sem gekk að lokum upp.
Toney sendi skilaboð á starfsmann Al Ahli í gegnum WhatsApp og gaf þar sitt loforð sem hann svo sannarlega stóð við.
Myndband af þessu má sjá hér.
🚨🚨🚨🚨
Ivan Toney before the game:
„Next game 2 goals.“
He indeed scored 2 goals! 🥶
— Football Xtra™ (@FootballXtra0) September 20, 2024